30.11.2010 13:07:31 / ragnheiður
»
21.11.2010 23:34:37 / Skorri92
Eins og flestum ætti að vera kunnugt verður haldið beltapróf, hjá taekwondo deild FRAM, í Ingunnarskóla fimmtudaginn 25. nóvember. Prófið verður á æfingatíma, þ.e. milli hálf sjö og átta. Gott er að mæta 15-30 mínútum fyrr.
Gangi ykkur vel.
Kv. Skorri
»
07.11.2010 18:12:04 / Skorri92
Sæl veriði,
Það er loksins komin endanleg stað- og dagsetning á Íslandsmótið í poomsae. Að þessu sinni verður mótið haldið á Akureyri, laugardaginn 20. nóvember.
Sjá nánar
hér.
Kv. Skorri
»
22.09.2010 19:37:37 / framtaekwondo
Komnar myndir frá Danmerkurferðinni ..
kv Ragnhildur
»
08.09.2010 20:33:02 / dagny
Sæl öll sömul.
Á laugardaginn 11 september er Framdagurinn sem haldinn verður í Grafarholti. Í tilefni þess ætlum við að færa Laugardagsæfinguna fram til kl 11:00.
Klukkutíma útiæfing, allir að koma í gallanum aðsjálfsögðu og í góðum íþróttaskóm. Einnig gott að vera með íþróttatreyju ( frampeysurnar) til að skella yfir sig.
Æfingin verður á lóð Guðríðarkirkju.
Ef spáin verður afleit þá verðum við færð og æfingin mun eiga sér stað innanhús

Við verðum þrjár með skemmtilega æfingu.
kv. Dagný, Saga og Guðbjörg.
»
29.08.2010 23:04:02 / dagny
Sæl
Æfingar í Safamýrinni verða á Þriðjudögum kl 19:30-21:00
Þessar æfingar eru ætlaðar sem viðbót fyrir fullorðna (14 ára og eldri)
kv.Dagný
»
25.08.2010 00:16:53 / dagny
Æfingar hefjast að nýju í Ingunnarskóla fimmtudaginn 2 sept 2010.
Æfingar í vetur verða á
Mánudögum 19:00-20:00
Fimmtudögum 18:30-20:00
Laugardagar 13:00-14:00
Einnig verða fullorðins æfingar í Safamýrinni á Miðvikudögum, tími auglýstur síðar.
Það eru æfingar fyrir 14 ára og eldri óhað beltum.
Hlökkum til að sjá ykkur hress og kát.
kveðja Þjálfarar.
»
14.05.2010 11:06:21 / dagny
sæl
Hér er æfingarplanið fyrir restina af maí.
Allar æfingar hafa verið færðar niður í Safamýri. Laugardags æfingar falla niður.
17 maí Mánudagur 20:00 - 21:00
18 maí Þriðjudagur 19:30 - 21:00
20 maí Fimmtudagar 19:00 - 20:00
22 maí Laugardagur Fellur niður. (Húsið lokað)
24 maí 2.í Hvítasunnu Fellur niður (Húsið lokað)
25 maí Þriðjudagur 19:30 - 21:00
27 maí Fimmtudagur 19:00 -20:00
29 maí Laugardagur fellur niður.
Svo kemur ný tafla fyrir Júní í lok mánaðar.
kveðja Dagný
»
14.05.2010 10:56:12 / dagny
Sæl öll sömul
Ég vil bara minna á að Laugardagsæfingin fellur niður á morgun 15 maí.
Íþróttahúsin bæði í Ingunnarskóla og Safamýri eru lokuð.
Kveðja Dagný
»
30.04.2010 09:30:28 / dagny
Hæ
Ég hef fengið fyrirspurnir um hvort ekki sé hægt að kaupa TKD Fram peysurnar, þ.e bláu hettupeysurnar.
Það er ekkert mál, en ég ætla að sjá hvað það eru margir sem vilja peysur svo hægt sé að leggja inn eina pöntun.
Þetta eru bláar hetturpeysur, renndar ( Fram liturinn/kóngabláar). Framan á vinstra barmi kemur logo deildarinna og nafn iðkanda. Aftan á peysun verður skrifað Taekwondo.
Verð : 5500 kr
Þeir sem vilja kaupa peysur eru beðnir að senda pöntun á agny@voruhysing.is">dagny@voruhysing.is , nafn (eins og það á að vera á peysunni) og stærð iðkanda.
Leggja upphæð inn á reikning deildarinnar og senda rafræna kvittun sama netfang.
Taekwondo Deild Fram
Safamýri 26
108 Rvk
kt: 671005-0660
reikn: 0115-26-110000
Við sem eigum peysur komum nú yfirleitt í þeim á æfingar, þannig að fólk getur þá mátað hjá okkur ef það er óöruggt með stærðirnar.
Stærðir
Fullorðins
Small
Medium
Large
x-large
Barna
Medium = 128
Large = 140
X-large = 152
Næsta stærð er small fullorðins.
»
26.04.2010 09:13:57 / dagny
sæl
Næsta beltapróf í FRAM verður fimmtudaginn 6 maí á æfingartíma í Ingunnarskóla.
Muna að mæta tímanlega fyrir próf og í hreinum göllum.
Fimmtudagurinn 6 maí 2010
kl 18:30
prófgjald: 2500 kr
Greiðist á staðnum eða leggist inn á reikning félagsins með nafni iðkanda í skýringu.
Taekwondo Deild Fram
Safamýri 26
108 Rvk
kt: 671005-0660
reikn: 0115-26-110000
Kveðja
Dagný
»
26.04.2010 09:08:34 / dagny
Laugardaginn 24 apríl var haldið svart belta próf í Safamýrinni.
Saga, Dagný og Guðbjörg tóku prófið og eru þar með komnir 3 nýjir svart beltingar í TKD deild FRAM.
»
30.03.2010 13:28:01 / dagny
sæl
Fram fór með 4 keppendur á Íslandsmótið í sparring laugardaginn 27 mars.
Stóðu þau sig öll með prýði.
Úrslit hjá FRAM voru eftirfarandi.
Skorri - Silfur
Ylfa Rán - Bronse
Alex Þór - Bronse.
»
30.03.2010 13:24:28 / dagny
Þá er komið páskafrí í TKD, fyrsta æfing eftir páska er fimmtudaginn 8 apríl.
Hafið það sem bestu um páskana.
kv.TKD FRAM
»
01.03.2010 22:00:46 / dagny
Sæl öll sömul
Við vorum að fá Adidas TKD galla til sölu, mjög flotta galla. Verð: 9500 kr.
Endilega sendið mail eða hringið í Hlyn eða Dagný ef áhugi er fyrir að kaupa slíka galla.
bestur kveðjur
Dagný
»
Síður:
1 2 3